Eyddu nótt heima hjá Harry Potter

Stofan er rúmgóð og falleg, en stórir gluggar setja svip …
Stofan er rúmgóð og falleg, en stórir gluggar setja svip sinn á rýmið. Skjáskot af Daily Mail

Nú getur þú dvalið í leiguíbúð sem er í eigu Harry Potter-stjörnunnar Daniels Radcliffes, það er að segja ef þú hefur efni á að punga út tveimur og hálfri milljón króna í leigu á mánuði.

Íbúð hins 26 ára gamla leikara er í Soho í New York og að sjálfsögðu öll hin glæsilegasta. Þar er að finna tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, líkamsræktarsal og sundlaug.

Radcliffe er sagður eiga þrjár aðrar eignir í New York, auk íbúðar í London og Melbourne í Ástralíu. Eignina í Melbourne keypti leikarinn þegar hann lék ástralskan munaðarleysingja í kvikmyndinni December Boys, þá 16 ára.

Fleiri myndir af slotinu má sjá á vef Daily Mail.

Borðstofan er bæði hlýleg og hugguleg.
Borðstofan er bæði hlýleg og hugguleg. Skjáskot af Daily Mail
Baðherbergið er stórt og hlaðið íburði.
Baðherbergið er stórt og hlaðið íburði. Skjáskot af Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál