Við Drápuhlíð í Reykjavík stendur 115 fm íbúð sem er ákaflega björt og fögur. Búið er að skipta um eldhús og baðherbergi og er hvíti liturinn áberandi. Það sem er sjarmerandi við íbúðina, fyrir utan skipulag og staðsetningu, er hvað húsgögnunum er raðað fallega inn í hana.
Keim af níunda áratugnum er blandað saman við klassíska hönnun. HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.