Við Sævargarða á Seltjarnarnesi stendur heillandi einbýli sem byggt var 1971. Húsið er 213 fm að stærð og vel með farið. Það sem er sjarmerandi við þetta hús er í fyrsta lagi eldhúsið sem er með innréttingu úr palesander við sem er nærri útdauður. Þessi viður er því ómetanlegur en hann hefur ekki fengist hérlendis síðan 1979.
Þegar inn á baðherbergi er komið taka bláar „seventís“ flísar á móti fólki. Þær eru í nákvæmlega sama litatóni og vaskur og baðkar. Þetta þótti ákaflega móðins á þeim tíma sem húsið var byggt. Þeir sem hafa næmt auga fyrir litum og formum sjá um hvað undirrituð er að tala um.
Það eru ekki mörg hús frá þessum tíma sem hefur verið jafnvel við haldið en það sér lítið sem ekkert á flísunum og eldhúsinnréttingunni.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.