Margrét Gísladóttir almannatengill og fyrrverandi aðstoðarmaður Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra hefur sett íbúð sína á sölu. Margrét hefur átt íbúðina síðan 2012 en hún er 61 fm að stærð og afar smekklega innréttuð.
Íbúðin er í hjarta miðbæjarins, við Barónstíg í Reykjavík. Hvíti liturinn er áberandi í íbúð Margrétar. Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting og einnig á baðherberginu. Stofan er svo máluð í ljósgráum tón sem kemur vel út.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.