Það heitasta í innanhússhönnun 2016

Vogue heldur því fram að ósamhverf húsgögn eiga eftir að …
Vogue heldur því fram að ósamhverf húsgögn eiga eftir að gera góða hluti í ár. Skjáskot Vogue.com

Blaðamenn Vogue vita hvað þeir syngja, enda eru þeir jafnan með puttann á púlsinum þegar kemur að tísku. Á dögunum heimsóttu þeir húsgagnasýninguna Maison Objet, þar sem rjóminn af fallegri hönnun og glæsilegum innanstokksmunum er sýndur.

Hér að neðan fylgir listi yfir sérlega fallega innanstokksmuni sem eiga síðan eftir að tröllríða öllu á árinu. 

Nútímalegir kertastjakar í hressandi litum ættu að vera til á …
Nútímalegir kertastjakar í hressandi litum ættu að vera til á sérhverju heimili samkvæmt lista Vogue. Skjáskot Vogue.com
Marmari hefur verið ótrúlega vinsæll undanfarið. Grænn marmari á eftir …
Marmari hefur verið ótrúlega vinsæll undanfarið. Grænn marmari á eftir að gera allt vitlaust á árinu, enda sérlega fallegur. Skjáskot Vogue.com
Mínimalískir beddar eru húsgögn sem sóma sér vel í hvaða …
Mínimalískir beddar eru húsgögn sem sóma sér vel í hvaða stofu sem er, að því gefnu að plássið sé nægt. Vogue spáir því að þetta húsgang  muni trylla lýðinn á komandi mánuðum. Skjáskot Vogue.com
Reyklitað gler er, og verður, sérlega heitt. Enda er það …
Reyklitað gler er, og verður, sérlega heitt. Enda er það ótrúlega fallegt, hvort sem það er notað í lampa, vasa, borðplötur, sturtugler eða stigahandrið. Skjáskot Vogue.com
Slettumynstur er búið að vera áberandi í veggfóðri, keramikmunum, flísum …
Slettumynstur er búið að vera áberandi í veggfóðri, keramikmunum, flísum og fleiru. Vogue segir að ekkert lát verði á vinsældunum. Skjáskot Vogue.com
Fallegir borðspeglar eiga eftir að gera allt vitlaust að mati …
Fallegir borðspeglar eiga eftir að gera allt vitlaust að mati Vogue, enda sameina þeir bæði fegurð og notagildi. Skjáskot Vogue.com
Hitabeltismynstur eiga eftir að tröllríða öllu. Íslendingar ættu að taka …
Hitabeltismynstur eiga eftir að tröllríða öllu. Íslendingar ættu að taka þessari tísku fagnandi, sér í lagi í kuldanum og skammdeginu. Skjáskot Vogue.com
Ofin bastljós eru sérlega hlýleg og falleg. Þau eiga eftir …
Ofin bastljós eru sérlega hlýleg og falleg. Þau eiga eftir að vera afar áberandi á næsta ári. Skjáskot Vogue.com
Kóngablár er hressandi litur sem á eftir að setja mark …
Kóngablár er hressandi litur sem á eftir að setja mark sitt á tísku næsta árs. Skjáskot Vogue.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál