Jennifer Lopez selur slotið

Að sjálfsögðu fylgir húsinu sundlaug. En ekki hvað?
Að sjálfsögðu fylgir húsinu sundlaug. En ekki hvað? Skjáskot Daily Mail

Jennifer Lopez hefur sett glæsihýsi sitt í Kaliforníu á sölu. Raunar setti söngkonan húsið á sölu á síðasta ári, en eitthvað hefur gengið illa að lokka að nýja kaupendur því nú hefur hún lækkað verðið um fjórar og hálfa milljónir Bandaríkjadala. Húsið er falt fyrir 12,5 milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar rúmlega einum og hálfum milljarði íslenskra króna. 

Húsið er allt hið glæsilegasta, en það hefur að geyma níu svefnherbergi, bíósal sem tekur 20 manns í sæti, líkamsræktarsal og upptökuver, átta eldstæði, bar og bílskúr sem rúmar hvorki meira né minna en átta bíla.

Fleiri myndir má sjá á vef Daily Mail.

Bíósalurinn tekur 20 manns í sæti. Ekki amalegt að halda …
Bíósalurinn tekur 20 manns í sæti. Ekki amalegt að halda kósýkvöld þar. Skjáskot Daily Mail
Í húsinu er að finna búningsherbergi. Takið eftir græna kjólnum …
Í húsinu er að finna búningsherbergi. Takið eftir græna kjólnum fræga sem búið er að stilla upp á miðju gólfinu. Skjáskot Daily Mail
Baðherbergið er hlaðið íburði.
Baðherbergið er hlaðið íburði. Skjáskot Daily Mail
Líkamsræktarsalurinn er ekkert slor.
Líkamsræktarsalurinn er ekkert slor. Skjáskot Daily Mail
Bókaherbergið er skreytt með myndum af söngkonunni.
Bókaherbergið er skreytt með myndum af söngkonunni. Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál