Við Sandprýði í Garðabæ stendur afar huggulegt einbýli sem byggt var 2011. Húsið er ákaflega lekkert með fallegum innréttingum.
Eldhúsið og stofan liggja saman í sameiginlegu rými. Hvít sprautulökkuð innrétting prýðir eldhúsið en þar er líka stór eyja með miklu skápaplássi. Hátt er til lofts í stofunni og vítt til veggja.
Baðherbergið í húsinu er sérstaklega fallegt með gráum stórum og grófum flísum sem fara vel við dökka innréttingu úr bæsaðri eik. Stóri speglaskápurinn á baðinu setur punktinn yfir i-ið eins og sagt er.
HÉR er hægt að skoða húsið nánar.