Mariposa-stóllinn er sannkallaður tískustóll þessa stundina en jafnframt er hann svo sígildur. Stóllinn, sem stundum er kallaður fiðrildastóllinn, var hannaður árið 1938 í Buenos Aires. Hönnuðurinn Jorge Ferrari Hardoy hannaði stólinn ásamt þeim Antonio Bonet og Juan Kurchan. Hardoy var menntaður í arkítektúr og Mariposa-stóllinn varð einmitt til út frá húsnæði sem Hardoy hannaði. Hardoy fékk innblástur frá gamalli hönnun sem á rætur sínar til að rekja til ársins 1977 þegar hann teiknaði Mariposa-stólinn upp, þann stól var hægt að fella saman. Í dag er vandaði Mariposa-stóllinn stóllinn framleiddur í Svíþjóð undir handleiðslu leðursérfræðinga.