Ævintýrahús við leynigötu Reykjavíkur

Ein krúttlegasta gata landsins, Haðarstígur í miðbæ Reykjavíkur, iðar af sjarma og skemmtilegheitum. Við götuna standa heillandi hús sem mörg hver er búið að gera upp á fantaflottan hátt. 

Nú er eitt þeirra komið á sölu. Það var byggt 1927 og er í heildina 152 fm að stærð. Gengið er inn nokkrar tröppur og þá er komið inn á aðalhæð hússins. Þar er eldhús og stofur. Í risinu er baðherbergi og hjónaherbergi og í kjallaranum er þvottahús og annað herbergi. 

Húsið var tekið í gegn fyrir um áratug og þá voru settar nýjar innréttingar í eldhúsið og skipt um gólfefni. Húsinu hefur verið ákaflega vel við haldið og eru svalirnar og garðurinn í kringum húsið iðandi af sjarma. 

HÉR er hægt að skoða húsið nánar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál