175 milljóna einbýli í Skerjafirði

Fasteignaverð virðist vera að hækka upp úr öllu valdi núna. Nú er einbýli nokkurt við Skildinganes í Skerjarfirði komið á sölu. Á húsið eru settar litlar 175 milljónir. 

Fasteignamat hússins er 164.400.000 kr. Húsið sjálft var byggt 1983 og er 457 fm að stærð. Það er vandað og vel við haldið og náttúrlega á einum fallegasta stað í Reykjavík. Skildinganes 54 er í 101 og því stutt í miðbæinn, út á Seltjarnarnes og í Kringluna. 

Í eldhúsinu er falleg eikarinnrétting með fallegri viðarborðplötu. Á húsinu eru vönduð gólfefni, teppi og náttúruflísar í bland við parket. Úr húsinu er tryllt útsýni eins og sést á myndunum úr stofunni. 

HÉR er hægt að skoða húsið nánar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál