Tíu milljarðar fyrir gamla hús Cher

Cher bjó í þessari svakalega eign á sínum tíma.
Cher bjó í þessari svakalega eign á sínum tíma. AFP/Skjáskot af Zillow

Söngkonan Cher bjó eitt sinn í þessu glæsilega húsi sem er nú falt fyrir upphæð sem nemur um 10,4 milljörðum króna. En Cher er ekki eina fræga manneskjan sem hefur búið í húsinu því það var eitt sinn í eigu leikarans Eddie Murphy.

Húsið er risavaxið, nánar tiltekið um 1.800 fermetrar. Til viðbótar fylgja fimm hesthús eigninni og tvö gestahús, annað þeirra er rúmir 600 fermetrar er fram kemur á fasteignavefnum Zillow. Og að sjálfsögðu er tennisvöllur á lóðinni. Húsið var í eigu Cher á níunda áratug seinustu aldar áður en hún seldi Murphy það.

Svo sannarlega glæsileg eign sem kostar sitt.

Hér hafa þau Cher og Eddie Murphy búið.
Hér hafa þau Cher og Eddie Murphy búið. Skjáskot af Zillow
Sveitastíll ræður ríkjum.
Sveitastíll ræður ríkjum. Skjáskot af Zillow
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál