Keypti 500 milljóna „skrifstofuhús“

Kylie Jenner á líklega eina flottustu heimaskrifstofu sem fyrirfinnst.
Kylie Jenner á líklega eina flottustu heimaskrifstofu sem fyrirfinnst. AFP

Ungstirnið og raunveruleikapían Kylie Jenner gerði sér lítið fyrir á dögunum og festi kaup á glæsilegu húsi í Hidden Hills-hverfinu í Kaliforníu.

Jenner hyggst þó ekki búa í húsinu, sem kostaði 4,5 milljónir Bandaríkjadala eða tæpar 527 milljónir íslenskra króna, heldur er það hugsað sem skrifstofuhúsnæði.

Húsið er ekkert slor, en það hefur að geyma fjögur svefnherbergi, fjögur baðherbergi, sundlaug og nuddpott. Á lóðinni er einnig að finna gestahús sem vinir stjörnunnar fá afnot af þegar þeir heimsækja hana.

„Hún breytti húsinu í algeran verðlaunagrip. Húsið hefur mikið verið gert upp og er alger sýningargripur,“ sagði fasteignasali stjörnunnar í viðtali við Us Weekly.

Það er ekki amalegt að fá sér svolítinn sundsprett á …
Það er ekki amalegt að fá sér svolítinn sundsprett á milli verkefna. Ljósmynd / skjáskot Us Weekly
Stærðarinnar fataherbergi er nauðsyn á hverja skrifstofu.
Stærðarinnar fataherbergi er nauðsyn á hverja skrifstofu. Ljósmynd / skjáskot Us Weekly
Það er mikilvægt að láta fara vel um sig í …
Það er mikilvægt að láta fara vel um sig í vinnunni. Ljósmynd / skjáskot Us Weekly
Hver þarf svo sem mötuneyti?
Hver þarf svo sem mötuneyti? Ljósmynd / skjáskot Us Weekly
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál