Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon og eiginkona hans, Birna Rún Gísladóttir viðskiptafræðingur, hafa sett glæsilegt heimili sitt við Bjarkargötu í Reykjavík á sölu. Um er að ræða tvær hæðir á besta stað við Tjörnina, miðhæð þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja. Í kjallaranum er aukaíbúð.
Gólfin í íbúðinni eru sérstaklega glæsileg með fiskibeinamunstri. Allir gluggar eru stíflakkaðir hvítir og í íbúðinni eru rósettur og fallegir gólflistar. Heimili þeirra hjónanna er innréttað af smekkvísi eins og sést á myndunum.
HÉR er hægt að skoða heimilið nánar.