Hér hafa Pitt og Jolie búið í gegnum árin

Skötuhjúin festu kaup á glæsihýsi á Spáni fyrr í sumar.
Skötuhjúin festu kaup á glæsihýsi á Spáni fyrr í sumar. Ljósmynd / skjáskot Today

Hjónaskilnaður stórstjarnanna Brad Pitt og Angelinu Jolie er að setja allt á hliðina, en leikkonan sótti um skilnað frá Pitt á mánudaginn.

Um fátt annað hefur verið rætt í fjölmiðlum, enda skilnaðurinn fremur óvæntur. Jolie og Pitt hafa verið saman í tólf ár, og þar af gift í tvö. Þau eiga saman sex börn, og eru sannkallaðir heimsborgarar, enda hafa þau átt hús út um allar trissur.

Vefurinn Today tók saman lista yfir nokkur heimili sem hjónakornin hafa deilt í gegnum árin. Og segja má að eignirnar séu ekkert slor.

London
Fjölskyldan hefur undanfarið dvalið í London. Glæsihýsið er staðsett rétt við ána Thames, en það hefur að geyma átta svefnherbergi, innisundlaug og líkamsræktarsal. Leigan er eftir því, en hjónin hafa þurft að greiða 21 þúsund dollara á mánuði, sem samsvarar tæplega tveimur og hálfri milljón íslenskra króna.

Hús hjónanna í London er ekkert slor.
Hús hjónanna í London er ekkert slor. Ljósmynd / skjáskot Today

New Orleans
Árið 2006 festu hjónin kaup á húsi í New Orleans. Húsið er allt hið glæsilegasta, en þar er að finna fallegan marmara, eldstæði og gólfsíða glugga.

Eignin í New Orleans er sérlega sjarmerandi.
Eignin í New Orleans er sérlega sjarmerandi. Ljósmynd / skjáskot Today

Provence
Jolie/Pitt hjónin hafa dvalið langdvölum í Frakklandi. Þar áttu þau sannkallaðan kastala, sem þau keyptu árið 2012 á 60 milljónir dollara. Húsið hefur að geyma 35 herbergi, margar sundlaugar, bíósal og þyrlupall. Þar gengu skötuhjúin einnig í hjónaband fyrir tveimur árum.

Franski kastalinn kostaði skildinginn.
Franski kastalinn kostaði skildinginn. Ljósmynd / skjáskot Today

Hollywood
Höfuðstöðvar fjölskyldunnar í Hollywood eru í hverfinu Los Feliz. Pitt keypti húsið árið 1994, en hann er einnig sagður hafa keypt nærliggjandi byggingar til að skapa fjölskyldunni meira næði.

Fleiri eignir fjölskyldunnar má sjá hér.

Hér bjó fjölskyldan þegar hún dvaldist í Hollywood.
Hér bjó fjölskyldan þegar hún dvaldist í Hollywood. Ljósmynd / skjáskot Today
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál