Epsom-salt er þekkt fyrir mögnuð áhrif sem það getur haft á líkamann. Margir baða sig upp úr epsom-salti, aðrir taka það inn til þess að hreinsa á sér þarmana. Hægt er að blanda 1 dl af Epsom-salti út í 1/2 dl af ólífuolíu og 2 tsk. af ilmkjaranolíu og skrúbba húðina með þessu. Þannig verður húðin mjúk.
Það er líka hægt að setja eina tsk. af Epsom-salti út í hreinsikremið og nudda vel inn í húðina. Það gefur húðinni aukinn ljóma og hreinsar vel óhreinindi í burtu. Mikilvægt er að skola andlitið vel á eftir.
Epsom-saltið er þó ekki bara gott fyrir líkamann heldur svínvirkar það í baráttunni við illgresið eins og sést í þessu myndbandi: