Sigrún Ósk Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri Heilsuborgar hefur sett glæsilegt hús í sinni eigu á sölu. Húsið er 268 fm að stærð og byggt 1926.
Húsið er ákaflega fallegt og vel við haldið. Það hefur verið í eigu Sigrúnar Óskar síðan 2010 en sjálf er hún ekki skráð með lögheimili þar heldur hinum megin við Tjörnina. Eftir að Suðurgötu var breytt og einungis hægt að keyra götuna í eina átt hefur umferð um hana minnkað.
Húsið er með stórum garði sem státar af myndarlegri verönd.