Ná ekki að selja húsið sitt

Alicia Keys og Swizz Beatz hafa reynt að losa sig …
Alicia Keys og Swizz Beatz hafa reynt að losa sig við húsið í ár. zillow.com/AFP

Tónlistakonan Alicia Keys og eiginmaður hennar, Swizz Beatz, ná greinilega ekki að losa sig við húsið sitt í New Jersey en eignin hefur verið á markaðnum í ár. Um 2.300 fermetra glæsihús er að ræða og ásett verð er upphæð sem nemur um 1,7 milljörðum króna.

Í húsinu glæsilega eru átta svefnherbergi og 14 baðherbergi, hvorki meira né minna! Húsið hefur einnig að geyma innisundlaug, kvikmyndasal, líkamsræktarstöð, keilubraut og upptökuver svo eitthvað sé nefnt.

Þess má geta að hjónin keyptu húsið árið 2013 af leikaranum Eddie Murphy og gerðu það upp.

Fleiri myndir af eigninni og nánari upplýsingar er að finna á fasteignavefnum Zillow.com.

Innisundlaugin er ekkert slor.
Innisundlaugin er ekkert slor. zillow.com
Málverk, ljósmyndir og skúlptúrar prýða hvern krók og kima á …
Málverk, ljósmyndir og skúlptúrar prýða hvern krók og kima á heimili þeirra Aliciu Keys og Swizz Beatz. zillow.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál