Leigir þetta hús á 15 milljónir

Justin Bieber ætlar að verja einhverjum tíma í London á …
Justin Bieber ætlar að verja einhverjum tíma í London á næstunni. Elledecor/AFP

Söngvarinn Justin Bieber hefur það aldeilis fínt fjárhagslega og þetta hús sem hann leigir í London er til marks um það. Samkvæmt upplýsingum af Elle Decor mun Bieber leigja húsið á upphæð sem nemur rúmum 15 milljónum króna á mánuði.

Húsið, sem er heilir 2.230 fermetrar, var byggt árið 1910 en hefur verið endurnýjað mikið í gegnum tíðina. Húsið hefur m.a. að geyma innisundlaug, heilsulind, vínkjallara og glæsilegt baðherbergi sem er innréttað með tólf tegundum af ítölskum marmara, tólf tegundum! Húsinu fylgir einnig risavaxin lóð og á henni má finna tennisvöll og sundlaug svo eitthvað sé nefnt.

Fregnir herma að Bieber ætli að verja töluverðum tíma í London á næstu misserum og þess vegna hafi hann tekið þetta glæsihús á leigu.

Hér getur Bieberinn eflaust náð slökun.
Hér getur Bieberinn eflaust náð slökun. Skjáskot af Elle Decor
Glamúrinn er við völd í þessu baðherbergi.
Glamúrinn er við völd í þessu baðherbergi. Skjáskot af Elle Decor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál