Rut Káradóttir hannaði eldhúsið í Skildinganesi 56. Hvítur marmari nýtur sín vel á móti hvítum innréttingum með fulningahurðum. Fasteignamat hússins er 105.950.000 kr.
Húsið stendur á besta stað í Skerjafirðinum með útsýni út á sjó. Það er allt hvítmálað, 268 fm að stærð og byggt 1983.
Pétur Hrafn og Björg fengu Rut Káradóttur innanhússarkitekt til að endurhanna hluta af húsinu eins og eldhúsið sem er ákaflega vel heppnað. Eldhúsið er með hvítri innréttingu með fulningum. Svartar höldur prýða innréttinguna og marmaraplata sómir sér vel á móti hvítu hurðunum. Svört vifta er fyrir ofan eldavélina og við hlið hennar eru ljósar viðarhillur. Þetta samspil er guðdómlega fallegt.