Cruise er sagður ætla að flytja til Flórída

www.theskyview.com/AFP

Leikarinn Tom Cruise er sagður vera að flytja í tveggja hæða lúxus-þakíbúð í Flórída sem er í eigu Vísindakirkjunnar. Íbúðin mun vera í sömu byggingu og höfuðstöðvar Vísindakirkjunnar.

Íbúðin sem um ræðir er víst hin glæsilegasta, í henni er meira að segja herbergi með flughermi. Íbúðinni fylgir svo bílalyfta sem opnast beint upp í íbúð þannig að næðið er algjört. Íbúðinni fylgir einnig bílskúr sem rúmar allt að níu bíla.

Samkvæmt heimildum The Underground Bunker mun talsmaður Vísindakirkjunnar hafa greint frá því að íbúðin væri ætluð Cruise.

www.theskyview.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál