Jared Leto selur kofann

Húsið er sérlega fallegt, og sundlaugin er ekkert slor.
Húsið er sérlega fallegt, og sundlaugin er ekkert slor. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Hollywood-stjarnan Jared Leto hefur sett hús sitt á sölu. Leikarinn keypti húsið árið 2006, og kostaði það þá 1,65 milljónir bandaríkjadali eða tæpar 188 milljónir íslenskra króna.

Verðið verður að teljast fremur hóflegt ef marka má hversu frægur Leto er, en taka verður með í reikninginn að hann hafði ekki slegið jafn rækilega í gegn og hann hefur gert í dag á þessum árum.

Leto er svo sem búinn að uppfæra húsakostinn, en á síðasta ári keypti hann annað hús í Los Angeles. Samkvæmt frétt Daily Mail var það hús ögn dýrara og pungaði leikarinn út 569 milljónum íslenskra króna.

Húsið sem Leto er að losa sig við er þó alls ekkert slor, en í því er að finna fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi og að sjálfsögðu er sundlaug í garðinum. Leikarinn fer fram á tæpar 228 milljónir fyrir húsið. 

Fallegur gróður setur skemmtilegan svip á eignina.
Fallegur gróður setur skemmtilegan svip á eignina. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Húsið er ævintýralegt, svo ekki sé meira sagt.
Húsið er ævintýralegt, svo ekki sé meira sagt. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Eldhúsið er bjart og rúmgott.
Eldhúsið er bjart og rúmgott. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Hér má sjá eitt af baðherbergjunum.
Hér má sjá eitt af baðherbergjunum. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Jared Leto stækkaði við sig.
Jared Leto stækkaði við sig. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál