Við Dalakur 4 í Garðabæ stendur óklárað 261 fm einbýlishús á einni hæð. Engar innihurðir eru í húsinu, engar innréttingar og engin gólfefni. Þótt settar séu á húsið um 122 milljónir er fasteignamat meira en helmingi lægra eða 56.450.000 kr.
Húsið var byggt 2013 og þótt búið sé í húsinu er það alveg hrátt. Gluggatjöld hanga fyrir dyraopum og inni á baðherbergjum er allt hrátt, hvorki flísar né innréttingar.