150 milljóna íbúð (tilbúin til innréttinga)

Íbúðirnar í Skuggahverfinu hafa aldrei verið gefins en nú nær verðið nýjum hæðum. Hér er hægt að kaupa hráa íbúð, tilbúna til innréttinga, fyrir rúmlega 800.000 krónur fermetrann. 

Íbúðin, sem er á efstu hæð við Vatnsstíg 14, er 182 fm að stærð en á hana eru settar 149.500.000 kr. Það þýðir að fermetraverðið er yfir 800.000 kr. Það væri kannski eðlilegt ef einhverjar innréttingar væru í íbúðinni, eins og gólfefni, eldhús, bað, raftæki og fleira. 

Þegar búið er að leggja út fyrir íbúðinni á líklega eftir að eyða allnokkrum milljónum í uppbyggingu ef íbúðin á ekki að vera eins og hellir. 

Af fasteignavef mbl.is: Vatnsstígur 14

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál