Við Bergstaðstræti 33B stendur undurfallegt rautt bárujárnsklætt hús. Í húsinu eru tvær íbúðir, sem báðar eru sérlega fallegar, enda hafa þær verið smekklega endurnýjaðar.
Önnur íbúðin er 102 fermetrar, en hún er á tveimur hæðum. Í kjallaranum er svo að finna litla tveggja herbergja íbúð.
Þær endurbætur sem hafa verið gerðar á húsinu eru afar fallegar, og í takt við anda hússins.
Frekari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef mbl.is.
Rýmið er sérstaklega fallegt.
Ljósmynd / Landmark
Hér sést hvernig eldhús, stofa og borðstofa mætast í opnu rými.
Ljósmynd / Landmark
Í stofunni er afar huggulegt og eflaust notalegt að hlamma sér í sófann á síðkvöldum.
Ljósmynd / Landmark
Á efri hæðinni er nokkurs konar koníaksstofa, þar sem gott er að sitja og ræða málin.
Ljósmynd / Landmark
Baðherbergið er látlaust, en fallegt.
Ljósmynd / Landmark
Fallegur blár litur hefur verið valinn á annað svefnherbergið.
Ljósmynd / Landmark
Svefnherbergið hefur verið málað í fallegum ljósgrænum lit.
Ljósmynd / Landmark
Húsið er reisulegt og fallegt.
Ljósmynd / Landmark
Íbúðin í kjallaranum er einnig sérlega björt og snotur.
Ljósmynd / Landmark
Íbúðin er lítil, en ágætlega skipulögð.
Ljósmynd / Landmark
Eldhúsið er lítið en krúttlegt.
Ljósmynd / Landmark
Svefnherbergið er málað hlýlegum gráum lit.
Ljósmynd / Landmark
Baðherbergið er bjart og notalegt.
Ljósmynd / Landmark