Svalasta stelpa í heimi selur íbúðina

Chloë Sevigny er mikil smekkkona og sést það glögglega á …
Chloë Sevigny er mikil smekkkona og sést það glögglega á heimili hennar. Skjáskot / Daily Mail

Leikkonan og tískugyðjan Chloë Sevigny hefur sett íbúð sína í New York á sölu, en slotið er staðsett í Brooklyn Park Slope-hverfinu eins og fram kemur í frétt Daily Mail.

Íbúðin hefur að geyma fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi og fer leikkonan fram á 2,75 milljónir Bandaríkjadala, eða tæpar 314 milljónir íslenskra króna, í skiptum fyrir hana.

Að sjálfsögðu er íbúðin öll hin glæsilegasta, enda heimili svölustu stelpu í heimi, eins og Sevigny hefur lengi verið kölluð.

Borðstofan er afar klassísk og falleg.
Borðstofan er afar klassísk og falleg. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
Hér má sjá eitt af svefnherbergunum. Eins og sjá má …
Hér má sjá eitt af svefnherbergunum. Eins og sjá má er Sevigny afar bókelsk. Skjáskot / Daily Mail
Gólfið setur sterkan svip á heimilið.
Gólfið setur sterkan svip á heimilið. Skjáskot / Daily Mail
Svefnherbergið er afar notalegt.
Svefnherbergið er afar notalegt. Skjáskot / Daily Mail
Chloë Sevigny er vel þekkt fyrir skemmtilegan stíl.
Chloë Sevigny er vel þekkt fyrir skemmtilegan stíl. Af vef RIFF
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál