Gwen Stefani setur höllina á sölu

Húsið er ekkert slor.
Húsið er ekkert slor. Skjáskot / Daily Mail

Söngkonan Gwen Stefani hefur sett glæsihýsi sitt á sölu, en húsinu deildi hún með fyrrverandi eiginmanni sínum Gavin Rossdale.

Stefani og Rossdale festu upphaflega kaup á húsinu árið 2006 og borguðu þá 13,2 milljónir Bandaríkjadala, eða rúmlega 1,5 milljarða íslenskra króna, fyrir herlegheitin.

Stefani ætlar ekki að tapa á sölunni því hún fer fram á 35 milljónir dollara, sem samsvarar rúmum fjórum milljörðum íslenskra króna, í skiptum fyrir húsið.

Húsið er að sjálfsögðu ekkert slor, en þar er að finna sjö svefnherbergi, 11 baðherbergi, gestahús, sundlaug, tennisvöll og hænsnakofa.

Eins og sjá má í frétt Daily Mail eru Stefani og Rossdale ekki einu stórstjörnurnar sem búið hafa í húsinu, því Jennifer Lopez átti heima í því á árunum 2000-2004.

Sófarnir eru æði sérstakir.
Sófarnir eru æði sérstakir. Skjáskot / Daily Mail
Í svefnherberginu er að finna afar óvenjulegt rúm.
Í svefnherberginu er að finna afar óvenjulegt rúm. Skjáskot / Daily Mail
Hér má hæglega láta fara vel um sig.
Hér má hæglega láta fara vel um sig. Skjáskot / Daily Mail
Gwen Stefani og Gavin Rossdale bjuggu í húsinu um átta …
Gwen Stefani og Gavin Rossdale bjuggu í húsinu um átta ára skeið. Ljósmyndari / Jason Kempin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál