Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra hefur sett íbúð sína og eiginmanns síns á sölu. Íbúðin er 85 fm og ansi hugguleg.
Heimili þeirra Þórdísar og Hjalta Sigvaldason Mogensen er fallegt. Eldhúsið er opið inn í stofu og það sem vekur athygli er hvað panillinn á stofuveggnum kemur vel út. Panillinn skapar hlýleika og er umvefjandi á allan hátt.
Í eldhúsinu er hvít innrétting með fulningahurðum en í íbúðinni eru einnig hvítar innihurðir sem spila vel á móti innréttingunni.