Við Strandveg í Garðabæ stendur ákaflega sjarmerandi 112 fm íbúð. Húsið sjálft var byggt 2004 og er sérstaklega gott skipulag á íbúðinni.
Stofa og eldhús renna saman í eitt og eru eikar-innréttingar áberandi í íbúðinni. Í eldhúsinu er eikar-innrétting og eyja sem er klædd með steini. Innihurðirnar eru líka úr eik og líka parketið á gólfunum.
Það sem gerir íbúðina ennþá meira sjarmerandi er hvernig húsgögnum og fylgihlutum er raðað upp. Hver hlutur á sinn stað án þess þó að stemningin verði of kaótísk.