Real Simple tók saman nokkur algeng mistök sem fólk gerir þegar það þrífur heimili sín.
Að setja klósettburstann beint í klósettburstahaldarann
Ef burstinn er blautur haldast bakteríurnar betur í burstanum. Þess vegna er gott að leyfa burstanum að þorna í tíu mínútur áður en hann er settur aftur í klósettburstahaldarann. Hægt er að klemma burstann á milli setunnar og skálarinnar og láta burstann þorna þannig.
Þvo gluggana á sólbjörtum degi
Glerúði þornar mun fyrr í mikilli sól, sem gerir það að verkum að för myndast á rúðunni. Þess vegna er kjörið að þrífa glugga síðdegis eða á kvöldin.
Að raða öllu í sömu átt í uppþvottavélina
Margir eiga það til að snúa hnífapörum og diskum eins en það ætti ekki að gera. Ef til dæmis allar skeiðar snúa í sömu átt koma þær í veg fyrir að vélin nái að þvo þær til fulls.
Setja hreinsiefni beint á hluti
Það er betra að setja hreinsiefni á tusku og svo þurrka. Það ætti einungis að setja efni beint á þá hluti sem eru mjög skítugir.