Selur íbúðina með sebrabaðherberginu

Kendall Jenner hefur sett íbúð sína á sölu. Annað baðherbergð …
Kendall Jenner hefur sett íbúð sína á sölu. Annað baðherbergð er veggfóðrað með sebrahestamynstri. mynd/samsett

Á meðan það reynist ungu fólki Íslandi erfitt að eignast sína fyrstu eign er hin 21 árs gamla Kendall Jenner búin að setja sína fyrstu eign á markað og það á 160 milljónir. 

Íbúðin sem er í Los Angeles er björt og stendur Eggið sem er úr brúnu leðri út úr íbúðinni sem er innréttuð með ljósum húsgögnum. Það er ekki annað hægt að segja um Jenner en að hún sé nútímaprinsessa og sést það einnig á rúminu sem er með fallegri himnasæng. 

Raunveruleikastjarnan og fyrirsætan er þó ekki að verða heimilislaus en samkvæmt Zillow keypti hún einbýlishús í Los Angeles í fyrra af leikarahjónunum Emily Blunt og John Krasinski. 

Það er pláss fyrir Kris Jenner og dætur hennar í …
Það er pláss fyrir Kris Jenner og dætur hennar í þessum sófa. ljósmynd/Zillow
Eggið setur svip á íbúðina.
Eggið setur svip á íbúðina. ljósmynd/Zillow
Húsgögnin eru einstaklega vel valin.
Húsgögnin eru einstaklega vel valin. ljósmynd/Zillow
Eyjan minnir á atvinnueldhús.
Eyjan minnir á atvinnueldhús. ljósmynd/Zillow
Rúmið er með rómantískri himnasæng.
Rúmið er með rómantískri himnasæng. ljósmynd/Zillow
blöndunartækin eru falleg.
blöndunartækin eru falleg. ljósmynd/Zillow
Íbúðin er í þessum turni.
Íbúðin er í þessum turni. skjáskot/Zillow
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál