Knattspyrnustjarnan Margrét Lára Viðarsdóttir og sjúkraþjálfarinn Einar Örn Guðmundsson hafa sett smekklega útsýnisíbúð sína í Selásnum í Árbæjarhverfi á sölu.
Svo virðist sem Margrét Lára hafi ákveðið að nýta tímann og selja íbúðina sína á meðan samherjar hennar í landsliðinu spila á Evrópumeistaramótinu í knattspyrnu í Hollandi. Eins og flestir áhugamenn um íslenska knattspyrnu vita missir Margrét Lára af mótinu vegna meiðsla.
Íbúðin í Skógarásnum er smekklega innréttuð og stílhrein. En útsýnið af svölunum, yfir Breiðholtið og Víðidalinn, er afskaplega fallegt.