Stórleikarinn og leikstjórinn Mel Gibson hefur sett Malibu-hús sitt á sölu fyrir einn milljarð og rúmar 800 milljónir. Húsið er hið glæsilegasta og ber merki um kaþólska trú Gibsons og söguáhuga.
Samkvæmt Variety eru fimm baðherbergi og fimm svefnherbergi og er hægt að finna arin í að minnsta kosti tveimur þeirra. Innréttingar og innanstokksmunir eru íburðarmiklir en Gibson hefur átt þónokkrar eignir á Malibu-ströndinni.
Leikarann vantar ekki húsaskól þó svo þetta hús sé að fara á sölu, en hann á meðal annars nokkrar eignir í fjöllunum á milli Malibu og Agoura, ein þeirra er kaþólsk kirkja. Hann á einnig eyjuna Mago Island á Fiji-eyjum.
Hér má sjá myndir úr húsi Gibson.