Stórfenglegt eldhús stjörnukokks

Stjörnukokkurinn Rachael Ray hefur nú sett orlofshús sitt í Southampton á sölu og er verðið um 511 milljónir íslenskra króna. 

Húsið keypti Ray ásamt eiginmanni sínum, tónlistarmanninum John Cusimano, árið 2008 fyrir tæplega 300 milljónir en þau gerðu það algjörlega upp. 

Eldhúsið er auðvitað í hæsta gæðaflokki þar sem Ray sérhannaði það sjálf. Í eldhúsinu er stór iðnaðarofn, kæliskápur fyrir drykki og áhrifamikill vínstandur. 

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, nokkrir arnar og fullt af húsgögnum sem hönnuð eru af sjálfri Ray. 

Með húsinu fylgir einnig gestahús með tveim svefn- og baðherbergjum og eigið eldhús.

Eldhús Ray er sérhannað af henni.
Eldhús Ray er sérhannað af henni. Skjáskot/Trulia
Skjáskot/Trulia
Skjáskot/Trulia
Skjáskot/Trulia
Skjáskot/Trulia
Skjáskot/Trulia
Skjáskot/Trulia
Eldhúsið í gestahúsinu.
Eldhúsið í gestahúsinu. Skjáskot/Trulia
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál