Kanadíska hönnunarstofan Audax sá um að endurhanna 116 ára gamalt hús í Kanada. Útkoman er vægast sagt heillandi og býr húsið nú yfir öllum nútímaþægindum.
Halda þurfti framhlið hússins í gamla stílnum en þegar inn er komið má sjá að skipulaginu hefur verið breytt auk þess sem stórir gluggar hafa verið settir á bakhlið hússins.
Innanhússhönnunin fólst í því að halda í karakter hússins en um leið þurfti hún að fullnægja kröfum eiganda um nútímalega fagurfræði.