Konráð Valur Gíslason einkaþjálfari í World Class hefur sett sína glæsilegu tveggja hæða íbúð í Grafarvoginum á sölu. Eins og sést á myndunum er hann ekki bara góður í að þjálfa ofurkroppa, hann er líka góður í að raða saman húsgögnum og hefur næmt auga fyrir litum. Konni eins og hann er kallaður er einn þekktasti fitness-þjálfari landsins og kemur sínu fólki oftar en ekki á verðlaunapall á mótum.
Rauði og hvíti liturinn er áberandi á húsgögnum. Hvítur sófi prýðir stofuna en rauði liturinn er notaður í púða, staka sóla og mottuna á gólfinu. Rauði liturinn fer líka yfir í myndlistina sem prýðir veggi heimilisins.
Íbúðin sjálf er 194 fm að stærð en húsið var byggt 1989.