Trommuleikarinn Helgi Svavar Helgason og Stefanía Thors kvikmyndagerðamaður hafa sett heimili sitt á sölu. Um er að ræða 119 fm hæð við Sæviðarsund. Húsið sjálft var byggt 1968 og eru innréttingar þess tíma áberandi í íbúðinni.
Í stofunni er til dæmis tekk-veggur sem hönnunaráhugamenn og tekk-elskendur eiga eftir að falla fyrir. Hægt er að leika sér látlaust með slíkan vegg, framkalla ævintýralega og heillandi stemningu.
Tekkið býr yfir þeim eiginleikum að passa með svo mörgum og ólíkum stílum.
Heimili Helga og Stefaníu er fallegt og vel skipulegt. Sniðug húsgögn eru áberandi og er sérstaklega skemmtilega raðað inn í stofu hússins.