„Okkur þykir þetta fyrirkomulag mjög rómantískt“

Ása Reginsdóttir og Emil Hallfreðsson ásamt syni sínum.
Ása Reginsdóttir og Emil Hallfreðsson ásamt syni sínum.

Ása María Reginsdóttir er búsett á Ítalíu ásamt eiginmanni sínum, Emil Hallfreðssyni, og börnum þeirra tveimur. En þau hjón koma alltaf til Íslands til að halda jólin og þykir ómissandi að halda í gamlar jólahefðir sem þau ólust upp við og njóta jólanna með sínum nánustu. 

Emanuel og Andrea, börn Ásu og Emils.
Emanuel og Andrea, börn Ásu og Emils.
Fyrirkomulagið hjá Ásu og Emil er svolítið sérstakt og skemmtilegt en þau hafa aðeins einu sinni borðað jólamatinn saman þrátt fyrir að hafa verið par í næstum áratug. „Við Emil höfum búið saman erlendis öll okkar samvistarár, eða alls níu talsins. Við komum bæði frá stórum og góðum fjölskyldum sem taka á móti okkur með opnum örmum þegar við lendum á klakanum og því höfum við bæði haldið jólin í mömmufangi. Þegar maður býr svona í burtu vill maður bara fá sínar jólahefðir og matinn sem maður er alinn upp við. Fjarlægðin gerir fjöllin blá. En eftir kvöldmatinn höfum við Emil svo hist og opnað gjafirnar saman. Okkur þykir þetta fyrirkomulag mjög rómantískt og jólin okkar eru þau bestu. Í fyrra borðuðum við þó jólasteikina saman í fyrsta skipti og það var líka yndislegt,“ útskýrir Ása. Þetta árið verður fyrirkomulagið samt svolítið frábrugðið þar sem þau eignuðust nýverið sitt annað barn. „Já, núna erum við komin með tvö börn og því bjóðum við fjölskyldunni heim í mjög margmennt og góðmennt aðfangadagskvöld í Garðabænum.“

Það er alltaf mikið líf og fjör í kringum fjölskyldu Ásu en hún á fimm systkini. „Við erum sex systkini auk mömmu, maka og barna. Mamma sá alltaf um að elda ofan í mannskapinn en nú hefur Gunnar Már mágur minn tekið við keflinu og eldar jólamatinn fyrir okkur öll af sinni stöku snilld – og ég sé um skreytingarnar. Jólin okkar í dag eru ekki ósvipuð því sem við systkinin ólumst upp við enda erum við sannfærð um að þetta séu bestu jólin í bænum!“

Skötuveisla og Köben ómissandi

Ása segir lífið úti á Ítalíu hafa orðið til þess að þau kunna betur að meta íslensku jólin. „Núna erum við farin að sjá alla íslenska jólasiðina, matinn og hefðirnar sem það besta í heimi.“ En hvaða jólahefðir eru Ásu ómissandi? „Skötuveislan á Þorláksmessu er alveg ómissandi. Og svo hef ég farið í aðventuferð til Kaupmannahafnar undanfarin ár með kærum vinkonum, það er ótrúlega ljúft á þessum árstíma.“

Að lokum rifjar Ása upp eftirminnilegustu jólin sín. „Það eru líklegast fyrstu jólin okkar Emils sem kærustupar. Hann gaf mér ósköpin öll af jólagjöfum og það var svo gaman að sjá hann í fyrsta skipti prúðbúinn í jakkafötum.“

Emanuel og Andrea.
Emanuel og Andrea.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál