Fagurkerar fagna ekki bara jólunum fyrir þær sakir að fá að skreyta og gera heimilin sín falleg heldur gæti einnig eitthvað ánægjulegt leynst í jólapakkanum sem gleður auga þeirra og fegrar heimilið í senn.
Sælgætisskál úr Heimahúsinu. Hún kostar 7.800 kr.
Blómavasi úr Hammershoj-línunni sem Christian Bauer hannaði fyrir Kahler. Hæð 25 cm, 12.980 kr í Líf og list.
Múmínálfabolli úr Módern. Hann kostar 3.490 kr.
32 cm hár ananas úr Módern. Þeir kosta 11.992 kr.
Bókin Inni eftir Rut Káradóttur innanhússarkitekt er meistarastykki. Hún kostar 10.990 kr. í bókaverslunum landsins.
Ullarteppi í stærðinni 200x140 cm frá Andreu. Það kostar 28.000 kr.
Heimilisilmur úr Heimahúsinu. 5.600 kr.
Finnsdóttir Big Foot lampinn vinsæli. Hann kostar 79.900 kr. í Snúrunni.
Kaffiborð eftir Thomas Bentzen. Kostar 26.900 kr. í EPAL.