Áskorun að koma sér snemma í jólagírinn

Ólöf Birna Garðarsdóttir og Hildur Sigurðardóttir,
Ólöf Birna Garðarsdóttir og Hildur Sigurðardóttir, mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Þær Ólöf Birna Garðarsdóttir og Hildur Sigurðardóttir, grafískir hönnuðir og eigendur Reykjavík Letterpress, hanna og búa reglulega til jólalínur sem innihalda meðal annars jólakort og jólapappír. Í ár er jólalínan mínímalísk og smart. Þær Ólöf og Hildur eru svo sannarlega komnar í jólagírinn enda þurfa þær að byrja að vinna jólalínuna strax í lok sumars. 

„Í ár er jólalínan okkar í hlýlegum og minimalískum stíl þar sem kopar og grænir tónar spila lykilhlutverk. Jólakortin eru tvennskonar, annars vegar grænn pappír og hins vegar brúnn pappír. Hvort tveggja kemur í fallega brúnleitum umslögum. Síðan er það allt fyrir jólagjafirnar! Jólapappírinn er himneskur og við bjóðum upp á tvær gerðir af honum. Það sem er skemmtilegt við jólapappírinn okkar er að það er mismunandi grafík á hvorri hlið sem gerir innpökkunina enn ánægjulegri. Við erum líka með jólabréfpoka sem henta vel undir allskonar smærri gjafir og einnig sex mismunandi gerðir af merkimiðum í stíl við allt saman,“ segja þær spurðar út í nýju jólalínuna.

Þetta er þriðja jólalínan sem Letterpress sendir frá sér en fyrirtækið hefur verið starfrækt í sex ár. „Í síðustu jólalínunni höfðum við léttleika og húmor í fyrirrúmi og fengum til liðs við okkur hina frábæru Rán Flygening sem myndskreytti hinn eina sanna jóla ToDo-lista! Þar lékum við okkur með allt sem við teljum okkur trú um að verði að klára fyrir jólin og teikningarnar hennar Ránar gerðu línuna glettilega góða. Þær hentuðu Letterpress-prentaðferðinni frábærlega vel. Sú aðferð er er svo falleg og færir alla flotta grafík og texta á nýtt plan, dýptin og einstök áferðin er bara svo dásamleg.“

Notast við hress jólalög

Þær Ólöf og Hildur koma sér ansi snemma í jólagírinn en það getur stundum verið krefjandi. „Já, helst þyrftum við að koma okkur í gírinn í sumarlok. Á þessum árstíma er það áskorun að finna jólaandann,“ útskýrir Ólöf sem kveðst t.d. notast við hress jólalög til að koma sér í jólagírinn. „Við erum mikil jólabörn og elskum að velta því fyrir okkur hvernig jólakort við viljum senda og hvernig okkur langar að pakka gjöfunum inn. Eðlilega er það okkar smekkur sem ræður útkomunni í bland við tíðarandann.“

En hjá Letterpress er ekki aðeins hægt að kaupa tilbúna jólalínu heldur vinna þær Ólöf og Hildur einnig eftir séróskum. „Slíkum verkefnum fer fjölgandi milli ára. Það er gaman að heyra margt fólk segja að það sendi færri jólakort nú til dags heldur en það gerði áður fyrr, en vilji þá hafa þau extra falleg,“ segir Ólöf.

Upplýsingar um sölustaði Letterpress má finna á Facebook-síðu þeirra. „Svo er búðin okkar á Fiskislóð 24 opin á milli klukkan 10.00 og 16.00 nema annað sé auglýst.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál