Sorg fylgir þegar jólasúkkulaðið klárast

Súkkulaðiframleiðandinn Omnom sendi í október frá sér nýtt vetrarsúkkulaði sem er kryddað með ristuðu malti, rifnum appelsínuberki og saltaðri karamellu. Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Omnom, segir súkkulaðið eiga að koma öllum Íslendingum í jólastuð. 

„Upphaflega vorum við bara að þróa nýtt hvítt súkkulaði en þegar við vorum byrjuð að gera grunninn áttuðum við okkur á að hann myndi henta vel í jólasúkkulaði. Og þá fórum við að hugsa: „Hvað tengir okkur við jólin, við æskuna og vetrartímann?“ Og malt og appelsín kom alltaf upp hjá okkur í hugmyndavinnunni, aftur og aftur,“ útskýrir Hildur, sem er himinlifandi með útkomuna eftir mikla tilraunavinnu. „Þegar við prófuðum að setja rifinn appelsínubörk í súkkulaðið ásamt ristuðu malti fundum við að þarna var komið rosalega skemmtilegt bragð. En okkur fannst samt eitthvað vanta. Þá var prófað að setja kanil í súkkulaðið og mismikið af honum. Og svo var smakkað aftur og aftur þar til rétt magn var komið. Að lokum var saltaðri karamellu bætt við, þar var rétta áferðin fundin og þá vissum við að þarna væru jólin komin,“ segir Hildur, sem viðurkennir að þetta sé ansi skemmtilegur hluti af vinnu hennar – að taka þátt í þróunarvinnunni og fá að smakka sig áfram.

En þetta er ekki í fyrsta sinn sem Omnom sendir frá sér vetrarsúkkulaði því það er árleg hefð. „Hugmynd okkar er að gera vetrarsúkkulaði fyrir hvert ár. Núna í ár erum við þriggja ára en þetta er samt fjórða vetrarsúkkulaðið okkar því við gerðum tvær tegundir árið 2014, við gátum ekki gert upp á milli,“ segir Hildur og hlær. En hvað verður um vetrarsúkkulaðið eftir veturinn? „Það fylgir þessu alltaf svolítil sorg þegar upplagið klárast og vetrarsúkkulaðið hverfur af markaði því það getur verið uppáhald sumra. Þess vegna ætlum við núna að framleiða smá skammt af jólasúkkulaði fyrri ára og selja í búðinni okkar úti á Granda,“ segir Hildur, sem hefur orðið vör við mikla eftirspurn eftir t.d. öðru jólasúkkulaðinu sem framleitt var árið 2014. Aðdáendur þess ættu því að geta nælt sér í skammtinn sinn þetta árið og skoðað glæsilega verslun Omnom í leiðinni.

Viðskiptavinurinn fær að smakka og fylgjast með

Hildur segir starfsfólk Omnom hafa lagt mikla áherslu á að gera verslunina úti á Granda skemmtilega. Búðin er í sama húsnæði og verksmiðjan, en glerveggir aðskilja verslunina og verksmiðjuna. „Já, við erum með glugga inn í verksmiðjuna þannig að viðskiptavinir geta komið í búðina og séð hvernig súkkulaðið verður til. Við erum þau einu á Íslandi sem gera súkkulaði beint úr baun og því er svo skemmtilegt að geta sýnt fólki allt ferlið. Svo bjóðum við alltaf upp á smakk í búðinni þannig að fólk veit hvað það er að kaupa. Í leiðinni getur það fræðst um súkkulaðið, upprunann og framleiðsluferlið.“

Spurð að lokum hvað hún myndi drekka með jólasúkkulaði þessa árs segir Hildur jólabjór passa vel með súkkulaðinu. „Ég myndi para með jólabjór, þeir eru svolítið dökkir og maltaðir. Og kannski frískandi Riesling-víni, það gæti verið áhugavert.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál