Nýtir það sem er til á fataslánni

Þórhildur Þrándardóttir.
Þórhildur Þrándardóttir. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Skartgripahönnuðurinn Þórhildur Þrándardóttir, konan á bak við Viðja Jewelry, er ekki búin að ákveða í hverju hún verður þessi jólin og hún er ekkert að stressa sig á að finna nýtt dress. Ef hún fengi að ráða myndi hún klæðast kjól sem móðir hennar saumaði á hana í æsku. 

Kaupir þú þér alltaf nýtt dress fyrir jólin? „Ég gerði það áður fyrr en undanfarin ár hef ég notast við það sem er til á fataslánni.“

Er fjölskyldan alltaf í fínasta pússi á aðfangadag? „Já við erum það, ég hef alltaf haft mjög gaman af því að vera fínt til höfð á aðfangadag og haft gaman af því að hafa börnin mín til, mér finnst það vera ákveðinn partur af hátíðarstemningunni á aðfangadag.“

Hér er Þórhildur Þrándardóttir í jólakjólnum sem mamma hennar saumaði …
Hér er Þórhildur Þrándardóttir í jólakjólnum sem mamma hennar saumaði á hana.

Eftirminnilegasta jóladressið þitt: „Blár rósóttur kjóll sem mamma saumaði á mig þegar ég var sjö ára.“

Hefur þú orðið fyrir einhverju minnisstæðu tískuslysi á jólunum? „Engu sem kemur strax upp í hugann. Ég reyni að klæðast því sem mér líður vel í hverju sinni.“

Hvernig er drauma-jólakjóllinn? „Ég hef ekki átt mér neinn drauma-jólakjól en ætli drauma-jólakjóllinn væri ekki helst kjóllinn sem mamma saumaði á mig þegar að ég var lítil, verst að ég passa ekki í hann lengur.“

Leggur þú einhverja áherslu á förðun yfir jólin? „Nei,“ segir Þórhildur sem er þó ansi hrifin af rauðum varalit. Á meðfylgjandi myndum er hún með varablýant í litnum Cherry og varalitinn Lady Danger, bæði frá MAC.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál