Frábærar gjafir fyrir níska Jóakima

Allir þekkja einn Jóakim sem tímir engu en safnar og …
Allir þekkja einn Jóakim sem tímir engu en safnar og safnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóakimar landsins bíða spenntir eftir aðfangadegi þótt þeir séu líklega ekki jafnspenntir að gefa gjafir enda sérlega nískan þjóðfélagshóp. Allir þekkja einn Jóakim, einstakling sem elskar að spara, safna peningum og jafnframt erfitt að gera til geðs. Vanda þarf því gjafavalið sérstaklega. 

Það er gott að gefa því fólki sem líkist hinum sparsama frænda Andrésar andar hluti sem tengjast peningum og sparsemi. Einnig er sniðugt að gefa Jóakimum dýra og fína hluti í stað margra minni og þá sérstaklega hluti sem fara aldrei á útsölu enda er fátt jafn fullnægjandi fyrir Jóakima og að gera góð kaup á útsölum. 

Kaupthinking

Jóakimar vita að græðgi er ekki leiðin að hærri innistæðu á bankareikningnum en elska þó góðar sögur úr fjármálaheiminum. 

Kaupthinking. Verð frá 3.890 kr.
Kaupthinking. Verð frá 3.890 kr.

Listaverk

Hinir nísku Jóakimar vita að listaverk hækka bara í verði. Það er tilvalið að kaupa listaverk frá listamönnum sem teljast enn til grasrótarlistamanna. 

Galleríið Miðpunkt í Hamraborg býður upp á skemmtilega list á …
Galleríið Miðpunkt í Hamraborg býður upp á skemmtilega list á jólamarkaði sínum um helgar.

Skafmiði

Jóakim myndi aldrei eyða peningum í fjárhættuspil en er þó alltaf til í að græða.

Það væri ekki slæmt að vinna þann stóra á skafmiða.
Það væri ekki slæmt að vinna þann stóra á skafmiða. mbl.is/Golli

Seðlaveski

Það ilmar ekkert betra en nýstraujaðir seðlar í augum þeirra sparsömu. Fallegt og veglegt seðlaveski er góð gjöf. 

Þetta seðlaveski frá Gucci fæst á Net - a - …
Þetta seðlaveski frá Gucci fæst á Net - a - porter og kostar 76.000 kr.

Símahulstur

Á meðan síminn virkar er það fínt fyrir níska Jóakima. Verst væri að þurfa að fjárfesta í nýjum síma ef eitthvað eins og skjárinn brotnaði. Þess vegna er mikilvægt fyrir þá að vera með gott símahulstur. 

Símahulstur fyrir Iphone X. Kostar 14.990 kr. í Símanum.
Símahulstur fyrir Iphone X. Kostar 14.990 kr. í Símanum.

Sodastream-tæki

Jóakimar hugsa þannig að þeir séu að græða með hverri flöskunni sem þeir drekka af kolsýrðu vatni úr Sodastream-tækinu. 

Þetta Sodastream-tæki með flöskum kostar 13.995 í Elko.
Þetta Sodastream-tæki með flöskum kostar 13.995 í Elko.

Reiðhjól

Hjólreiðar í stað aksturs eru ekki bara góðar fyrir umhverfið heldur líka fyrir budduna og það kunna Jóakimar að meta. Auk þess er hægt að fá góða hreyfingu með því að fara út að hjóla. 

Þetta Trek-hjól fæst í Erninum og kostar 169.990 kr.
Þetta Trek-hjól fæst í Erninum og kostar 169.990 kr.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál