Ljúffeng klassík um jólin: Gamaldags sérrí-frómas

stækka

Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Morgunblaðið Elín Albertsdóttir elal@simnet.is

Þau leiðu mistök urðu þegar þessi uppskrift birtist fyrir viku að vatnsmagn var rangt. Hér kemur uppskriftin aftur og nú rétt. Þessi eftirréttur er ávallt vinsæll um hátíðir. Hann hefur fylgt kynslóðum en margir þekkja hann frá ömmum sínum eða langömmum.

5 eggjarauður

5 msk. sykur

1 dl sérrí

3 dl rjómi

4 plötur matarlím

Leggið matarlímið í kalt vatn í 5 mínútur til að mýkja það.

Þeytið saman eggjarauður og sykur. Bætið sérríi og þeyttum rjóma saman við.

Sjóðið ½ dl af vatni og kælið aðeins niður. Hrærið einni og einni matarlímsplötu saman við þar til það leysist upp. Hellið matarlíminu í mjórri bunu út í eggjahræruna.

Hellið frómasnum í glös eða fallega skál og látið stífna yfir nótt. Skreytið með ferskum berjum að vild.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sólginn í hráfæði

Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar.
í gær Guðmundur Örn Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir forréttindi að vinna með fólki sem hefur það að markmiði að hjálpa öðrum. Meira »

Ný IÐA í Zimsen-húsinu

Bára Kristinsdóttir.
23.5. Bára Kristinsdóttir opnar innan tíðar litla IÐU í Zimsen-húsinu sem verður allt í senn bókabúð, gjafavöruverslun og kaffihús. Meira »

Indverskar vefjur og mangósósa

Jóhanna Jónas leikkona og veitingastjóri á Grænum kosti.
23.5. Lífrænt hráefni og ferskt grænmeti er í aðalhlutverki á veitingastaðnum Grænum kosti.  Meira »

Verðlaunablanda: Espresso-krydd með kjötinu

23.5. Espresso Rub nefnist ný þurrkryddblanda sem kom á markað hérlendis á dögunum.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is