Skellir sér örugglega út að hlaupa á jóladag
Anna Eiríksdóttir leikfimisdrottning er mikið jólabarn. Hún segist elska þennan tíma, sérstaklega eftir að hún varð mamma. Hún eyðir jólunum með manninum sínum og sonunum þremur.
Hvað borðar þú á aðfangadag, jóladag og annan í jólum? „Á aðfangadag ætlum við að vera með humar í forrétt, fyllta kalkúnabringu með öllu tilheyrandi í aðalrétt og himneska eplaköku með miklu súkkulaði og ís í eftirrétt. Á jóladag förum við í fjölskylduboð til foreldra minna en svo vorum við að spá í að vera með æðislegt humarpasta á annan í jólum og leyfa strákunum okkar að búa til góðan eftirrétt fyrir okkur.“
Hvað finnst þér best við jólin? „Mér finnst samveran með fjölskyldunni vera það langbesta við jólin. Það að upplifa jólin í gegnum börnin er eitt það yndislegasta sem ég veit um.“
Gerir þú eitthvað sérstakt til þess að fitna ekki yfir jólin? „Ég hreyfi mig mjög mikið allt árið um kring og hef því ekki miklar áhyggjur af jólunum. Ég nýt þess bara í botn að borða góðan mat og slaka aðeins á og skelli mér svo örugglega út að hlaupa eða á góða æfingu í Hreyfingu á annan í jólum.“
Hvaða jólagúmmulaði er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Mér finnst Machintosh mjög jólalegt og gott og svo hlakka ég mikið til þess að fá mér jólaeftirréttinn sem er æðisleg heit eplakaka frá Nóa Siríus með miklu súkkulaði, hún er unaðsleg með ís.“
Hvað langar þig í í jólagjöf? „Knús og kossa frá fjölskyldunni minni og það að fá að vera öll saman, það er besta gjöfin sem ég get hugsað mér.“
























