Allt fyrir kökugerðarmeistara: Pinnakökur hafa slegið í gegn
Elín Albertsdóttir elal@simnet.is
Í Bandaríkjunum hefur gripið um sig kökuæði. Fyrst voru það bollakökurnar (cup cakes) sem voru fagurlega skreyttar. Nú eru það pinnakökur (pop cakes) sem fólk gerir fyrir jólin og skreytir af mikilli list. Pinnakökur eru afar vinsælar í afmælum og brúðkaupum vestan hafs og kökugerðarmeistararnir nota ímyndunaraflið til að búa til sem fallegustu og frumlegustu kökurnar.
Í New York er stórverslun sem nefnist N.Y. Cake en þar er selt allt sem hugsast getur fyrir konfekt- og kökugerð, frá smæstu áhöldum og formum upp í óteljandi möguleika á efnum til skreytinga. Það besta við þetta er að allt er hægt að skoða og versla í gegnum netið því verslunin sendir um allan heim. Kíkið endilega á www.nycake.com.
HÉR má sjá einfaldar leiðbeiningar hvernig best er að bera sig að.
























