Girnilegt kjúklingasalat
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir lumar á uppskrift að dásamlegu kjúklingasalati með satay-sósu. „Ég smakkaði þetta salat fyrst hjá Fríðu vinkonu minni og það var svo sannarlega ást við fyrsta smakk. Sérlega bragðmikið og gott salat,“ segir Eva Laufey. Hún deildi uppskriftinni á bloggi sínu.
Þessi uppskrift er fyrir 5-6
1 poki spínat
4 kjúklingabringur
1 askja kirsuberjatómatar
1 lárpera
1 krukka fetaostur
u.þ.b. 150 g kúskús
satay-sósa
salt og pipar
Ég byrja á því að skera kjúklingabringurnar í litla bita og steiki upp úr olíu, bæti satay-sósunni saman við og hræri vel í (5-6 msk., smekksatriði hvað þið viljið hafa mikið bragð). Svo strái ég smá salti og pipar yfir og leyfi þessu að malla í dágóða stund við vægan hita.
Tekur um það bil 25 mínútur að verða klárt.
Á meðan kjúklingurinn mallar á pönnunni skuluð þið sjóða kúskús eftir leiðbeiningum á pakkanum (yfirleitt er nóg að setja það í sjóðandi heitt vatn í 3-5 mínútur).
Því næst skolum við grænmetið mjög vel og skerum í litla bita. Svo finnum við okkur gott fat fyrir salatið.
Spínatið fer neðst í fatið, dreifum síðan vel úr kúskúsinu og kjúklingurinn ofan á það. Ofan á kjúklinginn fara tómatar og lárpera. Síðast en ekki síst fer fetaosturinn dásamlegi ofan á salatið, ég nota heila krukku.
Mér finnst þetta salat einstaklega dásamlegt og mæli með því að þið prufið. Sérlega núna eftir miklar steikur þá þráir líkaminn eitthvað í hollari kantinum.
HÉR er hægt að lesa blogg Evu Laufeyjar.
























