Salat með heitreyktri gæsabringu og hindberjasósu
Marta María martmaria@mbl.isÁttu afgang af gæsabringu, rjúpu eða annarri villibráð? Notaðu afganginn í ljúffengt salat og útbúðu sósu í blandaranum.
Hér er tillaga að samsetningu á salati:
Afgangur af heitreyktri gæsabringu
Klettasalat
Ofnbökuð sæt kartafla
Ofnbakaður rauðlaukur
Sellerístöngull
Valhnetur eftir smekk
Parmesan ostur eftir smekk
Sjálf notaði ég tvær gæsabringur, 1 sellerístöngul, 1/2 parmesan ost og skar niður með ostaskera, eina sæta kartöflu, 3 rauðlauka, tvo poka af klettasalati, handfylli af valhnetum og 2 msk hlynsíróp.
Aðferð:
Ofnbakið sæta kartöflu og rauðlauk í um það bil hálftíma við 200 gráður.
Setjið valhnetur á pönnu og hellið nokkrum dropum af hlynsírópi yfir og látið veltast á pönnunni í fimm mínútur.
Þegar sæta kartaflan og rauðlaukurinn eru tilbúin er þau sett til hliðar og látin kólna áður en þau eru sett út á salat.
Setjið klettasalat í skál, skerið niður gæsabringu og parmesan ost og blandið varlega saman. Þá er valhnetunum bætt út á og þegar sæta kartaflan og rauðlaukurinn eru orðin köld er þeim bætt út á og blandað saman.
Hindberjasósa
200 g hindber, mega vera frosin
1/2 dl eplaedik
1/2 dl ólífuolía
4 döðlur
Allt sett í blandara og maukað saman þangað til áferðin er flauelsmjúk.
Sósan er sett yfir salatið.
Verði ykkur að góðu.
























