Súperhollar möndluvöfflur sem allir geta útbúið

Mynd 1 af 2
Möndluvöfflur eru sérstaklega ljúffengar. mbl.is/Marta María

Vöfflur eru í miklu uppáhaldi hjá mörgum, sérstaklega undirritaðri og hennar fjölskyldu. Síðustu ár hafa speltvöfflur verið vinsælar en nú kveður við annan tón. Möndlumjöl er nýjasta uppáhalds „duft“ húsmóðurinnar.

Prófaðu að skipta hveitinu eða speltinu út fyrir möndlumjöl. Það er ákaflega ljúffengt. Það er mjög einfalt að búa til möndlumjöl með því að setja möndlur í blandarann. Í blandaranum frá Vitamix tekur það nokkrar sekúndur að gera 200 g af möndlum að dufti.

200 g möndlumjöl

50 g smjör, brætt

4 egg

1/2 tsk. salt

1 tsk. lyftiduft

2 dl hrísmjólk, sojamjólk eða kúamjólk.

Blandið öllu saman í skál og hrærið vel saman með pískara. Svo er vöfflunum skellt í vöfflujárnið.

Rjómi og sulta tilheyra ofan á vöffluna. Þú getur prófað að skipta rjómanum út fyrir gríska jógúrt. Það gerir sama gagn.

Verði ykkur að góðu!

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sólginn í hráfæði

Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar.
í gær Guðmundur Örn Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir forréttindi að vinna með fólki sem hefur það að markmiði að hjálpa öðrum. Meira »

Ný IÐA í Zimsen-húsinu

Bára Kristinsdóttir.
23.5. Bára Kristinsdóttir opnar innan tíðar litla IÐU í Zimsen-húsinu sem verður allt í senn bókabúð, gjafavöruverslun og kaffihús. Meira »

Indverskar vefjur og mangósósa

Jóhanna Jónas leikkona og veitingastjóri á Grænum kosti.
23.5. Lífrænt hráefni og ferskt grænmeti er í aðalhlutverki á veitingastaðnum Grænum kosti.  Meira »

Verðlaunablanda: Espresso-krydd með kjötinu

23.5. Espresso Rub nefnist ný þurrkryddblanda sem kom á markað hérlendis á dögunum.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is