Vefsíðan www.bbcgoodfood.com: Ljúffengur fingramatur

Í spilaboðum og jafnvel í áramótaboðinu er sniðugt að bera fram litla smárétti eða snarl. Í þá getur verið alveg tilvalið að nota ýmiss konar afganga sem annars daga uppi í ísskápnum. Kalt kjöt reynist vel í slíkt og svo eiga margir smáananas eða kannski ferskt salat sem eitthvað þarf að gera við. Á vefsíðu breska tímaritsins BBC Good Food má finna ótal hugmyndir að girnilegum smáréttum. Til að finna uppskriftirnir skal slegin inn slóðin hér að ofan og síðan skrifað „finger food“ í leitarvél síðunnar.

Þá opnast manni heilll heimur af sniðugum og einföldum hugmyndum. Sama hvort þú vilt galdra slíkt fram með skemmtilegu spili eða sem forrétt um áramótin. Í safninu má meðal annars finna uppskrift að einföldum litlum hvítlaukspitsum, fíkjum með prosciutto-skinku og ýmiss konar útfærslur af kokkteilpylsum. Þær eru ódýrt hráefni og tilvaldar til að búa til litla snarlrétti. Afgang af góðum osti má líka vefja inn í beikon og stinga í ofninn. Svo er bara að leyfa hugmyndafluginu að ráða sem mest.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sólginn í hráfæði

Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar.
í gær Guðmundur Örn Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir forréttindi að vinna með fólki sem hefur það að markmiði að hjálpa öðrum. Meira »

Ný IÐA í Zimsen-húsinu

Bára Kristinsdóttir.
23.5. Bára Kristinsdóttir opnar innan tíðar litla IÐU í Zimsen-húsinu sem verður allt í senn bókabúð, gjafavöruverslun og kaffihús. Meira »

Indverskar vefjur og mangósósa

Jóhanna Jónas leikkona og veitingastjóri á Grænum kosti.
23.5. Lífrænt hráefni og ferskt grænmeti er í aðalhlutverki á veitingastaðnum Grænum kosti.  Meira »

Verðlaunablanda: Espresso-krydd með kjötinu

23.5. Espresso Rub nefnist ný þurrkryddblanda sem kom á markað hérlendis á dögunum.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is