Bakaðu vanillubombu fyrir gamlárskvöld
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir elskar vanillukökur og bakar reglulega vinillumúffur. Í nýjasta pistli sínum gefur hún uppskrift að vanillubombu sem er tilvalin í eftirrétt á gamlárskvöld.
„Ég ákvað því að prufa að útbúa vanilluköku með vanillukremi. Kakan var reglulega góð með ferskum jarðarberjum.“
5 eggjahvítur
180 ml mjólk
3 tsk. vanilluextrakt (eða vanilludropar)
285 g hveiti
350 g sykur
3 msk. maizenamjöl
20 g lyftiduft
170 g smjör
1/2 tsk. salt
Aðferð
Byrjum á því að stilla ofninn á 180°C.
Setjum hveiti, salt, lyftiduft og maizenamjöl saman í skál, náum okkur í sigti og sigtum hveitiblönduna fimm sinnum. Þannig verður deigið ansi létt og fínt.
Náum okkur síðan í aðra skál og pískum eggjahvítur, vanilluextrakt og mjólk saman í smástund og leggjum svo til hliðar.
Blöndum hveitiblöndunni og sykrinum saman í hrærivél í um það bil tvær mínútur á litlum hraða svo hveitið fari ekki út um allt. Bætum smjörinu saman við, mér finnst best að skera smjörið í litla bita og bæta einum og einum saman við í einu.
Því næst bætum við eggjablöndunni saman við í þremur hlutum og blöndum þessu vel saman í nokkrar mínútur.
Smyrjum tvö form og inn í ofn við 180°C í 25-30 mínútur.
Á meðan kakan er í ofninum snúum við okkur að kreminu góða.
Vanillukrem
7 eggjahvítur
5 dl sykur
fræ úr einni vanillustöng
Setjum hráefnin í skál, setjum vatn í pott og bíðum þar til suðan kemur upp. Þegar suðan er komin upp setjum við skálina með hráefnunum ofan í og byrjum að hræra, mikilvægt að hræra vel allan tímann. Þetta tekur 4-5 mínútur ofan í pottinum. Um leið og kremið er orðið ljóst og létt skellum við því í hrærivélina og hrærum þar til skálin er orðin nánast köld. Kremið er verulega heitt og þetta tekur ca 7-8 mínútur að verða klárt.
Ég lét kremið í smástund inn í ísskáp áður en ég notaði það á kökuna.
Ljúf og góð vanillubomba
Ég skreytti svo kökuna með ferskum jarðarberjum og reif niður smásúkkulaði.
Ég mæli með því að stappa 50 g af ferskum jarðarberjum eða hindberjum saman við kremið sem þið ætlið að hafa á milli botnanna. Ég held að það gæti verið algjört æði!
Um að gera að prufa allt mögulegt því möguleikarnir eru endalausir.
























